Back to All Events

The Mandalorian and Grogu


  • Sambíó 4-12 Kringlan Reykjavík, Reykjavíkurborg, 103 Iceland (map)

Athugið breytar dagsetningar!

Við höfum verið beðin um að mæta á nokkra viðburði tengda frumsýningu á The Mandalorian & Grogu. Um er að ræða eftirfarandi daga og staðsetningar:

19. maí kl. 18:30 – Sambíó Kringlan

20. maí – Nexus Egilshöll

21. maí kl. 18:30 – Sambíó Kringlan

23. maí – Smárabíó / Smáralind
Þar hefur verið rætt um mögulega viðveru annars vegar einhvern tímann á bilinu 13:30–17:00 og hins vegar 18:00–20:15, eftir því hvað hentar fólki best og hversu margir komast.

Smárabíó og Smáralind hafa sérstaklega óskað eftir viðveru okkar helgina 23. maí og virðast mjög áhugasöm um samstarf með okkur í kringum myndina. Það er engin skylda að vera á staðnum allan tímann. Fólk getur alveg mætt í styttri tíma, komið og farið eða bara kíkt við um stund eftir því sem hentar hverjum og einum. Að sjálfsögðu er líka velkomið að vera allan tímann fyrir þá sem hafa áhuga á því.

Mjög mikilvægt er að þeir sem hafa áhuga á 23. maí taki fram sirka hvenær þeir komast þann dag svo við getum skipulagt okkur sem best.

Fyrir þá sem hafa áhuga verður einnig möguleiki á að fá bíómiða á myndina.

Ekki er víst að við munum geta mannað alla dagana eða allar staðsetningarnar. Svo við munum nota svörin úr forminu til að sjá hvað er raunhæft að skipuleggja.

Endilega látið vita sem fyrst hvaða daga þið komist og hvort þið hefðuð áhuga á 23. maí svo við getum skipulagt þetta sem best.

Previous
Previous
10 May

Star Wars messa

Next
Next
13 June

Kynningarmyndband - Bókasafn Hafnarfjarðar