Blóðbankinn - World Blood Doner Day
Dagsetning: Fimmtudagur 18. júní 2026
Tímasetning: Mæting kl. 12:00 (Áætlaður tími er um það bil klukkustund, auk tíma sem fer í að skipta um föt)
Staðsetning: Blóðbankinn, Kringlunni (5. hæð)
Blóðbankinn hefur boðið okkur í heimsókn fimmtudaginn 18. júní næstkomandi. Þar sem Blóðbankinn er fluttur á 5. hæð í Kringlunni er húsnæðið mun minna en áður og plássið því verulega takmarkað.
Vegna þessa getum við að hámarki mætt 4–5 meðlimir í búningi, auk eins handlers / officers.
Gott er að hafa í huga að skiptiaðstaðan á staðnum er þröng, en þar geta aðeins um þrír meðlimir skipt um föt í einu.
Búningaóskir og val á hópnum
Blóðbankinn lýsti yfir sérstökum áhuga á að fá Stormtroopera, Snowtroopera og Darth Vader ef mögulegt er, en allir búningar eru þó velkomnir.
Þar sem fjöldi meðlima í búningi er takmarkaður við fimm manns gildir eftirfarandi regla um skráningu:
Við auglýsum viðburðinn opinn til skráningar fyrir alla.
Ef fleiri en fimm skrá sig í búning munum við velja lokahópinn út frá búningaóskum Blóðbankans.
Blóðgjöf og aðrar leiðir til að taka þátt
Blóðbankanum þætti frábært ef einhverjir úr hópnum gætu gefið blóð á staðnum, en það er alls ekki skilyrði fyrir þátttöku. Einnig er möguleiki á að fara eingöngu í blóðprufur og sviðsetja myndatökur eftir þörfum.
Hvatning til þeirra sem komast ekki að í búningi: Ef það verður umframframboð af fólki í búninga hvetjum við meðlimi eindregið til að mæta samt sem áður, gefa blóð og sýna stuðning í borgaralegum klæðnaði. Upplagt er að nýta Garrison jakkana okkar í það og fjölmenna í blóðgjöf í nafni hópsins.
Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst hér að neðan og tilgreinið hvaða búning þið stefnið á að mæta í, eða hvort þið óskið eftir að mæta sem handler eða óbúningaklæddir blóðgjarar.

