Back to All Events

Stjörnustríðsdagurinn

  • Bókasafn Hafnarfjarðar 1 Strandgata Hafnarfjörður, Hafnarfjarðarkaupstaður, 220 Iceland (map)

Megi mátturinn vera með ykkur öllum í maímánuði!

Sem áður fögnum við Stjörnustríðsdeginum á þeim laugardegi sem næst fellur fjórða maí og nú verður líf og fjör á Bókasafni Hafnarfjarðar!

Við fáum frábæra gesti í heimsókn, en uppáhalds vondukallar allra, 501. hersveit keisarans, verða á svæðinu (Og hetjurnar í Geislasverðafélaginu til að berjast við þá, að sjálfsögðu!) og hver veit nema að Svarthöfði sjálfur líti við!

Allir krakkar fá barmmerki (á meðan birgðir endast), við ætlum að föndra og leika okkur, sýna hvernig á að gera stormsveitarbrynju, vera með ratleiki og alls kyns skemmtun fyrir alla, allsstaðar að úr stjörnuþokunni!

Við hvetjum alla til að mæta í búningum!

Dagskrá í grófum dráttum:

13:00 – 501st herdeildin og Geislasverðafélagið mæta og sýnir sig. Barmmerkjum dreift til krakka

13:30 - Stjörnustríðssögustund

14:00 - Sýningarbardagi frá Geislasverðafélaginu

14:30 – Myndataka með herdeildinni úti

Next
Next
May 8

Galactic Week